Marshall.is

  • Stkka letur
  • Sjlfgefin leturstr
  • Minnka letur
Greinar

maðurinn á þyrlunni

Netfang
Facebook!
Það mun ekki detta stígvél í sjóinn næstu misserin án þess að það sé sjávarútvegsstefnu ríkisstjórnarinnar að kenna, að mati hagsmunaaðila í sjávarútvegi.

Áróðursstríðið er hafið.

Í Vestmannaeyjum vikuna fyrir kosningar fóru þeir hamförum talsmenn Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn og fulltrúar flokksins í framboði til Alþingis. Í ritnefnd Fylkis, málgagns Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum, eru t.d. Arnar Sigurmundsson og Guðbjörg Matthíasdóttir. Þar sagði í kosningablaðinu að það hefði verið Samfylkingin með Ástu Ragnheiði og Sighvat Björgvinsson í broddi fylkingar sem barðist gegn dreifðri eignaraðild að bönkunum. Þar sagði að engin hefði hagnast meira á eftirlaunafrumvarpinu en Steingrímur J. Sigfússon. Vinstri flokkarnir eru svo hættulegir að mati þessa fólks að það má ljúga uppá þá. Það er í þágu þjóðarinnar.

Þar var eftirfarandi fullyrðing: „Fái vinstri flokkarnir til þess umboð munu þeir bæta kjör vinstri elítunnar í 101 Reykjavík. Til þess að geta það munu þeir lækka laun, hækka skatta og ríkisvæða sjávarútveginn."

Talsmáti bæjarstjórans í Eyjum endurspeglar þennan undarlega málflutning.

Mikið af Eyjafólki kaus vinstri flokkana einmitt vegna þess að því mislíkar það sem blasir við í núverandi kerfi. Það eru ekki allir haldnir sama þrælsóttanum og Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum.

Ég fundaði fyrir nokkrum vikum með hagsmunaaðilum í Vestmannaeyjum vegna opnunartíma flugvallarins í Eyjum. Bæjarstjóri stýrði fundinum en á honum voru fulltrúar ferðaþjónustunnar, flugfélagsins, Flugfélags Vestmannaeyja, samgönguráðuneytis (ég), og Flugstoða.

Ásamt Sigurgeiri Brynjari Kristgeirssyni, framkvæmdastjóra í Vinnslustöðinni og Magnúsi Kristinssyni, úgerðarmanni og eiganda Toyota. Þeir hafa eftir því sem ég best veit enga sérstaka hagsmuni umfram aðra bæjarbúa af flugvellinum en voru boðaðir sérstaklega á fundinn.

Kannski eru þeir meiri vinir bæjarstjórans en aðrir.

Alltaf þegar ég heyri grátstafina í LÍÚ verður mér einmitt hugsað til Magnúsar Kristinssonar sem keypti sér þyrlu, að sögn, vegna þess að ekki átti að gera göng til Vestmanneyja. Þannig gátu útgerðarmenn hagað sér 2007, sama ár og aflaheimildir voru skornar niður um 30%. En nú er ekki hægt að fyrna 5% á ári.

Sumir kaupa áróðurinn en spyrjum að leikslokum. Honum verður svarað, það má LÍÚ vita. Það verður lagður grunnur að innköllun og endurráðstöfun aflaheimilda á 20 ára tímabili. Þetta er að mínu mati sögulegur áfangasigur í baráttunni gegn mesta ranglætismáli í sögu þjóðarinnar og í samræmi við meirihlutavilja Íslendinga.



Add this page to your favorite Social Bookmarking websites
 

þessu verður að linna

Netfang
Facebook!

Og enn deila þeir. Hefur oddvitinn enga stjórn á mannskapnum. Hrikalegt að horfa uppá þetta. Þessu verður að linna.



Add this page to your favorite Social Bookmarking websites
 

ábyrgð og festa

Netfang
Facebook!

Leiðinlegt að sjá þessa gömlu samherja og vopnabræður takast á. Bara sorglegt. Vonandi nær Sjálfstæðisflokkurinn að leysa sín ágreiningsmál. Svona þjóðinni til heilla. Þeir verða bara að reyna muna hvað var gaman á landsfundinum um daginn.



Add this page to your favorite Social Bookmarking websites
 

maístjórnin

Netfang
Facebook!

maistjorninÞað er hægt að gera þetta vel og illa. Gluggar Alþingis minna okkur á átakavetur. Jón forseti fylgist með.



Add this page to your favorite Social Bookmarking websites
 

Heimaey

Netfang
Facebook!

Hef dundað mér við að þetta ljóð í um það bil ár en uppistaðan í því kom yfir mig í rafmagnsleysi í bústað austur í Brekkuskógi þarsíðasta vetur. Birti það hér sem þakklætisvott til samfélagsins á Heimaey fyrir ómetanlegan stuðning um helgina. Kannski verður þetta einhvern tíma sungið á Þjóðhátíð.

Heimaey

Er hnígur sól og dvínar sálar kraftur
og slekkur myrkrið birtu, gleði og von.
Úr dimmri borg til hennar brýst ég aftur,
í bernsku hún mig ól sem eigin son.

Hún þekkir allar sorgir sinna barna,
sefar hugarvíl og þerrar tár.
Eldsins rúnum var hún rist að kjarna,
en reis á ný og græddi öll sín sár.

Arfur er í hennar faðmi falinn,
fágæt gjöf í heimi tómleikans.
Æ vísar hún mér leið um dimman dalinn,
drengnum sem nú kominn er til manns.

Hún kýs að bera sína harma í hljóði
sem hefur þolað sorgir, grimmdarár.
Eldsins rúnum var hún rist að blóði,
en reis á ný og græddi öll sín sár.

Hún rís úr hafi brims og boðafalla,
svo björt og traust sem móðurástin hlý.
Á villuslóð ég heyri hana kalla,
þá hörfar myrkur, sólin skín á ný.

Að börnum sínum hvíslar ástarorðum,
enginn þerrar betur sorgartár.
Eldsins rúnir hana ristu forðum,
sem reis á ný og græddi öll sín sár.

Róbert Marshall



Add this page to your favorite Social Bookmarking websites
 

sæll

Netfang
Facebook!

Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum eru mjög spes. Takið eftir því að fréttin er um skemmdir á gjörningi. Þvílík ósvinna.

Gætum við ekki bara haldið okkur við málefnin?



Add this page to your favorite Social Bookmarking websites
 

víst ertu baugs

Netfang
Facebook!

Árni Johnsen minnti félagsmenn í Akóges á borgarnesræðuna, forsetann og klappstýrur útrásarinnar á fundi sem við sátum í gærkvöldi ásamt öðrum frambjóðendum.

Ég sagðist hafa haldið að flokkar sem væru að skila til baka ofurstyrkjum í skiptabú Jóns Ásgeirs, Hannesar Smára og Björgólfs myndu ekki fara inná þessar brautir.

Þá kom hún. Lygasetningin sem rann án áreynslu og kom djúpt innanúr músarhjartanu:

  • Samfylkingin skuldar Stöð 2 100 milljónir fyrir sjónvarpsauglýsingar. Fleðulegt bros Árna sneri beint út í sal. Þetta var eins og í leikriti. Menn verða ótrúlega ljótir þegar þeir ljúga.
  • Það gerum við ekki, sagði ég.
  • Víst, sagði Árni Johnsen.

Þeir eru samt Baugsflokkurinn.  Ég hafði heyrt ávæning af þessari vandræðalegu skröksögu frá flokknum með troðfullu vasana af útrásarstyrkjunum en þarna var frambjóðandinn að segja þetta við mig fyrir framan 70 manns.

Þetta er ósatt. Slúður, lygi, óhróður og ósannindi en tilgangurinn helgar meðalið.



Add this page to your favorite Social Bookmarking websites
 

landsamband óttans

Netfang
Facebook!

Sjálfstæðismennirnir Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins, og Ólafur Stephensen, ritstjóri Morgunblaðsins, ræddu evrópu- og peningamál í Markaðnum hjá Birni Inga á fimmtudag. Það var athyglisvert spjall. Ég hitti sjálfstæðismenn víða þessa dagana sem eru miklir evrópusinnar og fara hnuggnir með flokkslínuna: það tekur of langan tíma að sækja um evrópusambandsaðild og taka upp evru. Við þurfum að bregðast við vandanum núna.

Um þetta sagði Ólafur Stephensen:

Hér er í hverri viku kveðin óskapleg öfugmælavísa sem er þessi: Tökumst á við bráðavandann og geymum Evrópumálin þar til seinna. Þetta er rangt. Þótt það tæki einhver ár að komast inn í sambandið og taka upp evru, þá er sú vegferð lausn á bráðavandanum. Sendir umheiminum þau skilaboð hvaða stefna á hér að fylgja á næstu árum. Hvorki kjósendur á Íslandi, lánadrottnar né bandamenn Íslands í útlöndum vita hvert menn eru að fara."

Fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins sagði að enn væru menn ekki tilbúnir að taka nauðsynleg skref og ganga í Evrópusambandið til að fá nýjan gjaldmiðil. Deilurnar um ESB valdi hiki hjá of mörgum og fyrir vikið sé öllu skotið á frest.

Við höfum ekki efni á því að bíða lengur. Við verðum að taka ákvörðun mjög skjótt, því það tekur tíma að innleiða nýjan gjaldmiðil. Það verður að taka þessa ákvörðun nú í maí".

Hitti Sjálfstæðismann í vikunni sem sagðist ætla að kjósa sinn gamla flokk aftur, þrátt fyrir allt. Sá er sannfærðari Evrópusinni en ég. Þið leggið sjávarútveginn í rúst með fyrningarleiðinni.

-Heldurðu í alvöru að ég myndi leggja það til?

-Þú ert að því.

Stundum fallast manni hendur.

Flokkurinn sem í áraraðir neitaði að ræða evrópumálin segir nú að það taki of langan tíma að sækja um.

Flokkurinn sem gerði okkur að einni skuldugustu þjóð heims segir að aðrir flokkar muni setja okkur á hausinn.

Flokkurinn sem lagði grunn að útrásinni með því að breyta óveiddum fiski í peninga segir engum öðrum treystandi.

-Þú veist að Binni og Guðbjörg ráða því hvort Vestmannaeyjabær lifir eða deyr ef kerfið er óbreytt sagði ég við sjálfstæðismanninn.

-Já, það er náttúrulega fáránlegt.

-Auðvitað er það fáránlegt, sagði ég. Þetta er vænsta fólk en það á bara ekki að hafa þetta í sinni hendi. Manstu, það eru bara tvö þrjú ár, síðan við vorum næstum búnir að missa Vinnslustöðina norður til Akureyrar.

-Já, en Guðmundur var reyndar búin að segja Vestmannaeyjar mjög hentugan stað til útgerðar og að hann ætlaði að halda veiðiheimildunum þar.

Ég stakk því að honum í lok samtalsins að prófa að kjósa Sjálfstæðisflokkinn ekki; hætta í ruglinu. Hann hló að mér.

Á næstu sjö dögum mun LÍÚ halda áfram þessum makalausa hræðsluáróðri í gegnum Sjálfstæðisflokkinn. Þá reynir á að halda stillingu sinni. Nota rökin. Fleiri og fleiri sjá í gegnum rökleysuna. Þess vegna er Sjálfstæðisflokkurinn þriðji stærsti flokkur landsins. Hans tími er liðinn.



Add this page to your favorite Social Bookmarking websites
 

svosem ekkert kappsmál

Netfang
Facebook!

Þá er komin skýringin á frekar slæmri stöðu Framsóknarflokksins í Reykjavík. Það er formanni flokksins, að sögn, ekkert sérstakt keppikefli að komast á þing. Sem er óvenjuleg taktík og ef til vill útsmogin. Hann er lævís þessi Sigmundur Davíð. Maður sér það á brosinu.

Það er einkum tvennt sem stóð uppúr í þættinum úr Reykjavík norður á RÚV í kvöld. Þessi setning formanns Framsóknarflokksins. Og ljótasta sjónvarpsmynd ever. Í norður kóreu nota menn gjarnan einhver málverk sem höfð eru fyrir aftan gargandi fréttaþuli. Kannski gæti RÚV fengið eitt slíkt að láni. Eða settið úr Silfrinu.

Kalt, óháð og faglegt mat: Helgi Hjörvar var langbestur.



Add this page to your favorite Social Bookmarking websites
 

óhróður og slúður

Netfang
Facebook!
Pólitíkin getur verið hörð. En þetta læt ég ekki yfir mig ganga. Það er bara eitt til ráða.


Add this page to your favorite Social Bookmarking websites
 


Síða 1 af 2