Með aðild að Evrópusambandinu og upptöku Evru myndu vextir lækka, verðtryggingin heyrði sögunni til og gjaldeyrishöftin sömuleiðis. Á hverju ári mætti spara hálfa milljón króna á 20 milljón króna húsnæðisláni ef Evran yrði gjaldmiðill okkar.
Samfylkingin er eini stjórnmálaflokkurinn á Íslandi sem hefur það á stefnuskrá sinni að sækja um aðild að Evrópusambandinu, hefja viðræður og bera aðildarsamninginn undir dóm þjóðarinnar. Svo myndum við taka upp Evru.
Þetta er velferðarmál. Fátt kemur heimilunum í landinu betur. Hvaða lausnir bjóða hinir stjórnmálaflokkarnir?
Add this page to your favorite Social Bookmarking websites




