Marshall.is

  • Stkka letur
  • Sjlfgefin leturstr
  • Minnka letur

landsamband óttans

Facebook!

Sjálfstæðismennirnir Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins, og Ólafur Stephensen, ritstjóri Morgunblaðsins, ræddu evrópu- og peningamál í Markaðnum hjá Birni Inga á fimmtudag. Það var athyglisvert spjall. Ég hitti sjálfstæðismenn víða þessa dagana sem eru miklir evrópusinnar og fara hnuggnir með flokkslínuna: það tekur of langan tíma að sækja um evrópusambandsaðild og taka upp evru. Við þurfum að bregðast við vandanum núna.

Um þetta sagði Ólafur Stephensen:

Hér er í hverri viku kveðin óskapleg öfugmælavísa sem er þessi: Tökumst á við bráðavandann og geymum Evrópumálin þar til seinna. Þetta er rangt. Þótt það tæki einhver ár að komast inn í sambandið og taka upp evru, þá er sú vegferð lausn á bráðavandanum. Sendir umheiminum þau skilaboð hvaða stefna á hér að fylgja á næstu árum. Hvorki kjósendur á Íslandi, lánadrottnar né bandamenn Íslands í útlöndum vita hvert menn eru að fara."

Fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins sagði að enn væru menn ekki tilbúnir að taka nauðsynleg skref og ganga í Evrópusambandið til að fá nýjan gjaldmiðil. Deilurnar um ESB valdi hiki hjá of mörgum og fyrir vikið sé öllu skotið á frest.

Við höfum ekki efni á því að bíða lengur. Við verðum að taka ákvörðun mjög skjótt, því það tekur tíma að innleiða nýjan gjaldmiðil. Það verður að taka þessa ákvörðun nú í maí".

Hitti Sjálfstæðismann í vikunni sem sagðist ætla að kjósa sinn gamla flokk aftur, þrátt fyrir allt. Sá er sannfærðari Evrópusinni en ég. Þið leggið sjávarútveginn í rúst með fyrningarleiðinni.

-Heldurðu í alvöru að ég myndi leggja það til?

-Þú ert að því.

Stundum fallast manni hendur.

Flokkurinn sem í áraraðir neitaði að ræða evrópumálin segir nú að það taki of langan tíma að sækja um.

Flokkurinn sem gerði okkur að einni skuldugustu þjóð heims segir að aðrir flokkar muni setja okkur á hausinn.

Flokkurinn sem lagði grunn að útrásinni með því að breyta óveiddum fiski í peninga segir engum öðrum treystandi.

-Þú veist að Binni og Guðbjörg ráða því hvort Vestmannaeyjabær lifir eða deyr ef kerfið er óbreytt sagði ég við sjálfstæðismanninn.

-Já, það er náttúrulega fáránlegt.

-Auðvitað er það fáránlegt, sagði ég. Þetta er vænsta fólk en það á bara ekki að hafa þetta í sinni hendi. Manstu, það eru bara tvö þrjú ár, síðan við vorum næstum búnir að missa Vinnslustöðina norður til Akureyrar.

-Já, en Guðmundur var reyndar búin að segja Vestmannaeyjar mjög hentugan stað til útgerðar og að hann ætlaði að halda veiðiheimildunum þar.

Ég stakk því að honum í lok samtalsins að prófa að kjósa Sjálfstæðisflokkinn ekki; hætta í ruglinu. Hann hló að mér.

Á næstu sjö dögum mun LÍÚ halda áfram þessum makalausa hræðsluáróðri í gegnum Sjálfstæðisflokkinn. Þá reynir á að halda stillingu sinni. Nota rökin. Fleiri og fleiri sjá í gegnum rökleysuna. Þess vegna er Sjálfstæðisflokkurinn þriðji stærsti flokkur landsins. Hans tími er liðinn.



Add this page to your favorite Social Bookmarking websites
 

svosem ekkert kappsmál

Facebook!

Þá er komin skýringin á frekar slæmri stöðu Framsóknarflokksins í Reykjavík. Það er formanni flokksins, að sögn, ekkert sérstakt keppikefli að komast á þing. Sem er óvenjuleg taktík og ef til vill útsmogin. Hann er lævís þessi Sigmundur Davíð. Maður sér það á brosinu.

Það er einkum tvennt sem stóð uppúr í þættinum úr Reykjavík norður á RÚV í kvöld. Þessi setning formanns Framsóknarflokksins. Og ljótasta sjónvarpsmynd ever. Í norður kóreu nota menn gjarnan einhver málverk sem höfð eru fyrir aftan gargandi fréttaþuli. Kannski gæti RÚV fengið eitt slíkt að láni. Eða settið úr Silfrinu.

Kalt, óháð og faglegt mat: Helgi Hjörvar var langbestur.



Add this page to your favorite Social Bookmarking websites
 

smáeyjar

Facebook!

smaeyjar

Föstudaginn langa. Surtsey í buskanum. Hæna, Hani og Hrauney. Örugglega 14 stiga hiti. Haldiði?



Add this page to your favorite Social Bookmarking websites
 

óhróður og slúður

Facebook!
Pólitíkin getur verið hörð. En þetta læt ég ekki yfir mig ganga. Það er bara eitt til ráða.


Add this page to your favorite Social Bookmarking websites
 

söguskýring Bjarna Ben

Facebook!
Mjög athyglisverð söguskýring á lyktum REI-málsins hjá Bjarna Benediktssyni í fréttum í gær. Sjálfstæðismenn urðu þess valdandi að ekkert varð úr þeim áformum. Síðasta spurningin.


Add this page to your favorite Social Bookmarking websites
 

life imitating art

Facebook!
life_imitating_artSvo fer ég alltaf að hlæja þegar ég sé þessa. Það var reyndar mjög létt yfir þessum fundi en þarna er eins og eitthvað skelfilegt hafi komið fyrir. Eysteinn Eyjólfsson í Ópinu og Unnar Þór Böðvarsson sem The Thinker.


Add this page to your favorite Social Bookmarking websites
 

andlegur stuðningur

Facebook!
andlegur_studningur
Björgvin ávarpar Samfylkingarmenn í Tryggvaskála um helgina. Dæturnar Guðrún Ragna og Elísabet til halds og trausts við ræðuhöldin.


Add this page to your favorite Social Bookmarking websites
 

out of the box

Facebook!

out_of_the_box

Eysteinn kosningastjóri er með stærsta eldhúsglugga Íslands. Hugsar út fyrir kassann þó það geti verið dimmt yfir honum.



Add this page to your favorite Social Bookmarking websites
 

dagur í reykjanesbæ

Facebook!
dagur_i_reykjanesbae
Kosningaskrifstofan opnuð á föstudag. Hef ekki upplifað annað eins andrúmsloft í kosningabaráttu. Þetta er ákveðinn hópur. Engin vafaatkvæði þarna.


Add this page to your favorite Social Bookmarking websites
 

vítt og breitt

Facebook!

vidd-og-breitt

Suðurkjördæmi er risavaxið. Ég er alltaf með vélina í vasanum. Held að þessi sé frá Vatnsleysuströnd. Fallegir litir.



Add this page to your favorite Social Bookmarking websites
 


Síða 5 af 6